Hasamaka
1. Litháen: Dálítið spes lag sem komst óvænt upp úr undanúrslitunum. Skemmtileg melódía og ég er að fílaða. Endaði í 23. sæti og hefðu mátt vera mun ofar að mínu mati.
2. Israel: Alveg ágætislag með góðum boðskap, sem er reyndar fastur liður hjá Ísrael. Ekkert út á þetta að setja svo sem. Enduðu í 16 sæti sem er bara ágætt.
3. Frakkland: Þetta fannst mér því miður ekki spes. Það var náttúrulega frekar spes, það er ekki málið, en náði ekki að heilla mig. Leið eins og ég hefði farið aftur í tímann og grey konan var máluð eins og hún væri útgrátin eftir haugafyllerí. Hitti ekki í mark hvað mig varðar og endaði alltof ofarlega að mínu mati, 8. sæti.
4. Svíþjóð Svíjar sendu poppóperu til leiks þetta árið og það er e-ð við þetta lag sem náði mér. Fannst það geggjað og hefði átt að enda miklu ofar en 21. sæti
5. Króatía: Þetta fannst mér hræðilegt. Byrjaði ekkert svo illa en endaði bara á útopnu í einni als herjar söng-öskur keppni sem keppendur áttu því miður lítið erindi í, þar sem þeim gekk misvel að halda lagi. Endaði á einhvern ótrúlegan hátt í 18 sæti en átti að verma botninn ef þið spyrjið mig.
6. Portúgal: Hressleiki og litagleði í fyrirrúmi. Fannst þetta bara dálítið krúttlegt. Enduðu 15 og er ég ekkert ósátt við það, hefði jafnvel viljað sjá þau ofar.
7. Ísland: Stórglæsilegt! Fullkomlega flutt frábært lag og allt hreinlega svo mikið til fyrirmyndar að ef ég væri ekki ástfangin af norska laginu þá væri ég ósátt með 2. sætið. Glæsilegur árangur
8. Grikkland: Elsku Sakis mættur aftur, en hann hafnaði í 3. sæti árið 2004, þegar hann beið í lægra haldi fyrir Ruslönu og Zeljko. Nú var kappinn mættur aftur með mun betra lag, en aðeins eldri og ekki í eins góðu formi og því náði það ekki að skila sér heim í stofu. Þrátt fyrir að bolurinn rifnaði utan af kynþokka Sakis dugði það ekki nema í 7. sætið, sem hann svo bað grísku þjóðina afsökunar á, því að sjálfsögðu veðjuðu Grikkir á sigur. Ég mæli þó eindregið með laginu, alveg hægt að dilla sér við það og kemur mér alltaf í gott skap. Hér má sjá myndbandið við lagið:
10. Rússland: Ekkert spes hjá Rússunum þetta árið. Þeir hafa líklega verið skíthræddir við að vinna aftur. Það er samt e-ð seiðandi við viðlagið og það ómaði dálítið í hausnum á mér eftir keppnina. Rússar enduðu í 11 sæti og er það í fyrsta skipti í árafjöld sem þeir eru ekki inn á top 10.
11. Azerbaijan: Þetta lag hefur verið always on my mind síðan ég heyrði það fyrst. Strákurinn var meira á laginu en í undankeppninni, sem betur fer. Mér fannst þetta bara dálítið skemmtilegt, þó stelpan hafi verið í svo stuttum kjól að það þurfti að mæta við lendaskýlu svo það sæist ekki í brókina. Lenntu verðskuldað í 3. sæti.
12. Bosnia & Herzegovina: Yfirleitt er ég mjög hrifin af balkönskum ballöðum. T.d. Zeljko 2004 með lane moje
Og Marja sem vann 2007 með molitva:
En þetta var e-ð allt annað. Fannst þetta ekki búa yfir þeim trega og þeirri tilfinningu sem hefur einkennt þessi lög. Fannst þetta bara dull og nennti ekki að hlusta á þetta. Vantaði alla dramatík og öll fallegu hljóðfærin á bakvið. Enduðu 9. og ég er ekki sátt með það.
13. Moldovía: Voða hressleiki í gangi en mér fannst þetta hundleiðinlegt lag. Skil ekki hvernig það komst áfram. Enduðu í sama sæti og við í fyrra, því 14 og ég skil ekki hvernig það gerðist.
14. Malta: Ciara mætt aftur til leiks, eftir að hafa vermt 3. sætið 1998:
Lagið hennar Ciöru í ár var svo sem ágætt, mjög disney legt, en engu að síður gott, auk þess sem hún er alveg hörku söngkona. Það gladdi mig líka að hún tók hárið ekki upp, því það er bara hryllilegt þannig. Ciara náði ekki að bæta sinn besta árangur, en til þess hefði hún þurft að vinna. Þetta lag endaði í 22. sæti og það hefði mátt vera miklumiklu ofar.
15. Eistland: Sérstakt og skemmtilegt lag hjá Eistunum (haha) þetta árið. Það vinnur virkilega á í hlustun og mér finnst það betra því oftar sem ég heyri það. 6. sætið staðreynt og ég bara sátt með það.
16. Danmörk: Ronan Keeting samdi lagið og ég held að hann hafi tekið söngvarann í nokkra söngtíma líka. Hefði allt eins getað verið hann á sviðinu. Ágætis lag alveg hreint, þó að flutningurinn hafi ekki verið nógu góður, fannst hann vera svo mikið að rembast e-ð. Danir enduðu 13. og geta svo sem vel við unað.
17. Þýskaland: Fyrsta skipti í hvað mörg ár sem Þjóðverjar senda frambærilegt lag. Það er reyndar hægt að syngja aríaríaríó.. og það með á einum kafla í laginu og það fer dálítið í taugarnar á mér. En hvað um það. Finnst Þjóðverjarnir hafa mátt vera ofar en 20. sæti, en þar enduðu þeir engu að síður.
18. Tyrkland: Hadise mætt með þrusulag. Fannst mjög gott að sjá einhverja með bert á milli sem leit ekki út fyrir að vera með anorexíu. Þó hún hafi verið vel vaxin, þá var hún ekki grindhoruð! Flutningurinn fannst mér hins vegar ekki eins góður og ég bjóst við, enda hafði ég miklar væntingar. Fíla samt lagið og finnst 4. sætið bara gott mál.
19. Albania: Sérdeilis prýðilegt lag og söngkonan bara 16. Albanir enduðu 17 sem er þeirra slakasti árangur að ég held. Finnst það alveg hafa mátt vera ofar.
20. Noregur: Sætur strákur, geggjaður fiðluleikur, flottir dansarar, flottar raddir og geðveikt lag. Mjög svo verðskuldaður sigurvegari þetta árið og ekkert meira um það að segja :D
21. Ukraína: Þetta er nú held ég bara eitt slakasta lag sem Úkraína hefur sent frá sér. Venjulega er mjög auðvelt að halda með þeim (Ruslana og Ani Lorak t.d.) en þau hittu ekki í mark hjá mér í ár. Enduðu 12 og ég hefði hreinlega viljað sjá þau neðar.
22. Rúmenía: Balkanstelpur fíla djamma. Finnst þetta bara hreint ekki svo slæmt lag og ég hélt að það fengi fleiri stig, en 19. sætið staðreynd. Balkanstelpur hafa greinilega ekki verið nógu duglegar að kjósa.
23. Bretland: Loksins loksins gott lag frá Bretum. Heyri ég Halelúja?? Jade stóð sig með prýði og flutti þetta lag af stakri snilld. Besti árangur Breta í fjöldamörg ár, 5. sæti.
24. Finnland: Mér fannst þetta skemmtilegt lag. Meira að segja dálítið mikið skemmtilegt. Skil ekkert í Evrópu að kjósa það ekki ofar en í botnsætið. Það voru allavegana mörg lög mun verri að mínu mati. En svona er nú smekkur manna misjafn. Kannski voru ermarnar á dönsurunum ekki að meikaða.
25. Spánn: Spánverjar að reyna fyrir sér í fjölþjóðamússík, svipað og við reyndum með Selmu. En eins og með Selmu þá gekk það ekki upp, þrátt fyrir að lagið væri ekki beint slæmt. Spánverjar enduðu í 24. sætinu og því næstneðsta.
Og þannig var nú það
Annars var ég í útskrift um helgina. Skemmti mér með betra móti og alltaf gott og gaman að kíkja í Skagafjörðinn. Sauðburður er að klárast og á ég bara einn gemmsa eftir. Það er að verða fastur liður að ég á kindina sem er síðust til að bera, svo ég veðja á að sú verði raunin þetta árið einnig. Hinar mínar (9 stykki) eru bornar, allar með hvít og allar tvílembdar, fyrir utan gemsana. Nunna elskan bar svo í gær með 3 (eins og alltaf) og þar á meðal er mógolsótt gimbur sem ég er búin að merkja sem líflamb :P Alltaf jafn gaman í sveitinni :D
Brjálæði
Það er svo margt búið að ske að ég veit ekki alveg hvernig á að byrja. Ég fór í 4 próf og skeit eiginlega upp á bak í þeim öllum. Það er svona að eyða 3 vikum í veikindi með leti og metnaðarleysi í kjölfarið. Ég er þó búin að fá 2 einkunnir og náði ég þeim áföngum með naumindum. Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að taka stærðfræðigreininguna upp þrátt fyrir að hafa náð, því ég veit ég get miklu betur. En hvað um það. Á mánudaginn brunaði ég norður yfir heiði með henni Önnu Lóu. Rokið tók á móti mér, en aldrei þessu vant var það hlý sunnanátt, í staðinn fyrir norðanlognið. Í sveitinni hef ég verið einkar sambandslaus, svara ekki í símann minn og svara varla sms'um og hef ekkert farið í tölvuna fyrr en í dag. Ég er að elska það að vera komin í sveitina. Er búin að vakna klukkan 4 undanfarnar nætur og fara í fjárhúsin í svona hálftíma-klukkutíma til að líta eftir fénu. Flest hefur nú gengið vel fyrir sig en þó eru alltaf einhverjar rolluskjátur sem reyna að gera manni erfitt fyrir. Eins og í nótt t.d. kom ég út í fjárhús rúmlega 4. Ég hafði sofið í ca 3 og hálfan - fjóra tíma og var því nokkuð svefndrukkin. Ég rankaði samt aldeilis við mér nokkrum mínútum seinna. Þannig var mál með vexti að gemlingur var að bera. Gekk það frekar hægt, enda var lambið risastórt. Ég fer því ofan í króna með bönd með mér, tilbúin að kippa í. Ég næ gemmsanum og felli hann og ætla að fara að koma böndum á fæturnar á lambinu, þegar gemlingurinn sprettur á fætur og það í miðri hríð! Þá var hann svo styggur greyið að hann kærði sig sko ekkert um að ég væri e-ð að kássast í sér. Hófust nú mikil slagsmál, því eins og þessi bölvaði gemlingur var styggur var hann alveg jafn þrjóskur. Ég náði loksins að fella hann aftur og hálf sat ofan á honum á meðan ég kom böndunum fyrir. Loksins hætti greyið að hugsa um mig og fór að rembast og fyrst hún var hætt að brjótast um gat ég fært mig í betri stöðu. Ég togaði og togaði og bandið skarst inn í hendina á mér. Ég var farin að halda að ég þyrfti að hringja heim og vekja pabba, loksins þegar hausinn small út. Við þetta brá gibbu svo að hún rauk á fætur. Komst þó ekki langt, því ég hélt í böndin sem voru föst við lambið, sem var jú ekki komið út. Þetta hefur örugglega verið dálítið skondin sjón, ég sitjandi á rassinum í krónni og ríghélt í bönd sem voru föst í lambinu sem var ekki enn komið út og gemlingurinn standandi. Ég togaði af öllu afli og gemmsinn hjálpaði dálítið til og loksins loksins kom lambið út. Ég hugaði að lambinu og tók slímið úr kokinu á því á meðan gemlingurinn hljóp í burtu. Upphófust nú aftur slagsmál, því ég þurfti að ná honum til að stýja hann af. Það hafðist þó að lokum og eftir allt þetta erfiði vildi gemmsinn ekki sjá lambið. Hann karaði það ekki og stangaði það bara. Týbískt! Ofan á allt gat ég ekki sofnað þegar ég kom inn, rétt fyrir 5, því böndin höfðu skorist svo í puttann minn að ég var dofin í honum.
Svo er það Eurovision. Úrslitin komu mér alls ekki á óvart og þau lönd sem komust áfram voru allt lönd sem ég hafði spáð áfram, nema ég sagði Hvíta Rússland í staðinn fyrir Portúgal. Tyrkneska gellan olli mér vonbrigðum og miðað við útgáfuna sem ég sá á youtube var hún eiginlega hræðileg. Vona að hún verði betri á lau. Jóhanna flutti þetta náttúrulega gallalaust og þetta var stórglæsilegt. Fer samt ekki ofan af því að ég fíla ekki kjólinn. Nú er ég orðin spennt fyrir lokakvöldinu og morgundeginum, því þá stíga Alexander hinn norski og Sakis hinn gríski á svið. Ég bið til Guðs að Sakis kunni sér hóf á sviðinu og verði ekki of hallærislegur, því þetta er þrusulag.
Jæja, þarf í fjárhúsin. Kem kannski með e-a skemmtilega sauðburðarsögu síðar
Látið undan þrýstingi
Ég er búin að vera í bloggpásu, eins og glöggir lesendur (og þá sérstaklega Helga) hafa tekið eftir. Í vetur hef ég verið einstaklega ódugleg við þetta og eru ástæðurnar fyrir því af ýmsum toga. Víkjum að því síðar. Kannski. L&M eru komnar og farnar og nú er þeirra saknað sem aldrei fyrr. Ég kláraði 60% lokaverkefnið í Revit um daginn og teiknaði fjölbýlishús á 3 hæðum. Mikið stress í kringum það og er ég hrædd um að ég fái einn stóran mínus fyrir að gleyma að teikna hurðirnar inn á fyrstu hæðina eftir að allir innveggirnir duttu út og hurðirnar með. Bömmer. Ég er að byrja í prófum og ætti þess vegna ekki að vera að blogga. Ég er líka komin með vinnu í sumar, hjá Símanum. Verð í úthringiverinu í 50% vinnu og verð að vinna 5-10 mán-fim. Stefni ég á að taka 1-2 kúrsa í Háskólanum í sumar, allt eftir því hvað verður í boði, en það mun líklega skýrast í dag. Próflok eru áætluð eftir 2 vikur. Þá mun ég bruna heim í sveitina og massa sauðburðinn í ca viku áður en ég sný aftur í borgina og byrja að vinna. Afmælið hennar Signýjar og Koló-helgi eru svo handan við hornið, svo fátt eitt sé nefnt.
Ég veit þetta er stutt og aumingjalegt og betur má ef duga skal. En þó verður þetta að duga í bili. Lofa góðu innihaldsríku bloggi næst, þangað til eftir próf
Guðrún
Bara 4 dagar..


Hlakka svo til!!!!!!!!
Annars átti ég frekar crappy afmælisdag. Finnst leiðinlegt að vera 21 og vildi alveg skipta yfir í 20 aftur. Öllum dögum mínum sem tuttuguogeins hef ég neflinlega eytt í rúminu með 38° hita, hálsbólgu, hausverk og augnsýkingu bilív it or nott. Og þar er afmælisdagurinn meðtalinn. Reyndar komu m&p í heimsókn á afmælisdaginn og það besta við hann var líklega það að ég talaði við L á skype í klukkutíma og M fór á kostum. Sýndi mér herbergið sitt og dótið sitt, mataði mig á kexi og hló og skríkti. Alger snillingur þetta barn. En ég ætla að skunda til doktorsins á morgun og vonandi fá hjá honum sýklalyf eða eitthvað sem getur lagað þetta blessaða heilsufarsástand. Það hræðir mig dálítið hvað ég er búin að missa mikið úr skólanum. Ég ætlaði neflinlega að vera komin á undan á þessum tímapunkti, svo ég gæti slakað á þegar skvísurnar kæmu. Ég sé það ekki alveg gerast.
Þunnt og leiðinlegt í þetta skipti, en þið getið vonandi glaðst yfir myndunum. Adios
27 days and counting..
Það er aldeilis að fólk ríkur upp til handa og fóta til að kommenta þegar maður bloggar aftur eftir langt hlé. (Sense the sarcasm). Ég hef þó ákveðið að láta kommentaleysi ekki á mig fá og blogga engu að síður.
Í dag fór ég á frjálsíþróttamót. Tilgangurinn var að sjá Helgu Margréti setja met í kúlu, en eitthvað lét það á sér standa að þessu sinni. Kannski var kúlan 25 grömmum of þung í þetta skiptið? Neinei maður má nú ekki vera of heimtufrekur, það er nú ekki hægt að slá Íslandsmet um hverja helgi ;) Ég fór líka á unglingaflokksleik með KR (eins og ég myndi nenna á einhvern unglingaflokksleik nema KR væri að spila), og horfði á úrslitaleikinn á HM í handbolta. Mitt á milli allra þessa íþróttaviðburða renndi ég austur fyrir fjall með m&p. Kominn tími til, enda tíminn síðan ég fór á Selfoss farinn að hlaupa á árum!!
Annars eru busy dagar framundan. Næstu 3 helgar eru planaðar ferðir norður. Þar munum við hjúin m.a. týna kjúkling upp á nýjan máta og skella okkur á 2 þorrablót! Sérdeilis prýðilegt að hafa eitthvað til að hlakka til, því þá líður jú tíminn hraðar. Helgina eftir þessar 3 eru Laufey og Magnea neflinlega að koma. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa því hvað ég hlakka mikið til. Er til eitthvað betra??


Algerlega sætust!!!
Seint blogga sumir, en blogga þó!
Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Margt búið að gerast síðan síðast. Svei mér þá, ó já.
Þegar ég kom suður byrjaði ég á því að gefa sjálfri mér duglegt spark í rassinn og kláraði mál sem lengi hafa legið á hillunni. Nokkur verk er þó enn eftir uppi í hillu og það er m.a. að sækja um vinnu, panta tíma hjá tannlækni og finna tíma til að hreyfa á mér rassgatið. Skólinn er byrjaður af fullum krafti. Frekar skemmtilegir áfangar þessa önnina, nema þá eðlisfræði, sem er hryllingur. Skemmtilegasti áfanginn er by far tölvuteikning og framsetning, en þar erum við (eins og nafnið gefur til kynna) að teikna :) Sumir segja að þetta minni dálítið á Sims, en þar sem ég gat mér aldrei mikillar frægðar fyrir að spila þann leik, þá veit ég það ekki.
Annars er þorrablótatíðin framundan. Á mínum yngri árum þýddi þetta nammi og videó og kannski fékk einhver að gista, meðan mor og far tjúttuðu á blóti. Ég lennti m.a.s. í minni fyrstu útaf keyrslu á leiðinni í Staðarskála að kaupa nammi eitt skiptið sem foreldrarnir voru að fara á blót, en það er önnur og lengri saga. Stefnir nú allt í að við hjúin munum heiðra norðanmenn og konur með nærveru okkar hvorki meira né minna en 3 helgar í röð takk fyrir. Fyrsta helgin fer í kjúklingatýnslu upp á nýjan máta (erum s.s. búin að skipta yfir í Holta) svo er sameiginlega blótið og loks blótið heima í sveitinni.
Nú eru aðeins 34 dagar í að mín elskulega systir og litla skottið lendi á Kreppuskerinu. Mikið ofsalega rosalega ótrúlega mikið sem ég hlakka til. Langar mest að skrópa bara í skólanum í 3 vikur til að geta eytt sem mestum tíma með þessum elskum, en því miður þá gengur það kannski ekki alveg..
Ég veit ekki hversu langlíft blogg þetta á eftir að verða. Stundum gríp ég sjálfa mig glóðvolga við að skipuleggja næstu færslu í huganum, en þegar komið er að tölvuskjánum er kofinn tómur. Aðra stundina langar mig bara ekkert til að tjá mig.. Hef bara einhvern veginn ekkert að segja?
Þangað til næst..
Nú árið er liðið í aldanna skaut
Árið 2008 var heldur betur viðburðarríkt og ætla ég að rifja það aðeins upp. Þó ekki í jafn skrautlegum og skemmtilegum annál og nunnunar, en við sjáum hvað setur ;)
Árið byrjaði heldur rólega. Ég var allt í einu ekkert í skóla og komin í fulla vinnu á leikskólanum Furukoti. Janúar var viðburðalítill. Það eina sem ég gerði var að vinna og velta því fyrir mér hvort ég ætti að gerast verkfræðingur.
Febrúar var aðeins merkilegri, en hann byrjaði með því að ég fékk enn eina streptókokkasýkinguna (sem hefur reyndar látið mig í friði síðan, ótrúlegt en satt). Ég varð líka tvítug og skipti um bloggsvæði. Pælingar með námið héldu áfram.
Í mars bauð Friðrik Jónsson ehf öllum starfsmönnum sínum og mökum (that would be me) til Barcelona. Gistum við á Hotel Barcelona Plaza og var þetta snilldarferð í alla staði. Það var verslað og djammað, borgin var skoðuð og svo skelltum við okkur á Barcelona - Villa Real, sem fór reyndar 2-1 fyrir Villa Real. Ekki alveg úrslitin sem ég vildi, en skemmtilegur leikur samt. Ég sótti um í lífeindafræði í Háskólanum og skellti mér suður í afmæli til Örnu og á Skagfirðingakvöld.
Í apríl ákvað ég að halda lítillega upp á afmælið mitt. Fámennt og góðmennt teiti sem heppnaðist vel að mínu mati. Ég skemmti mér allavegana mjög vel. Seint í apríl var svo ár liðið frá bílslysinu. Skemmst er frá því að segja að ég er ekki búin að ná mér. Langt því frá. Í lok mánaðarins var svo elsku Raftahlíðin sett á sölu, þar sem hún er enn, því sökum kreppu og leiðinlegheita vill enginn kaupa hana.
Maí var heldur betur skemmtilegur mánuður. Hann var undirlagður í bakstur og alls konar reddingar fyrir útskriftina. Ég útskrifaðist með pompi og prakt 24. maí. Gerði mér svo lítið fyrir og trillaði fjölskyldunni í alsherjar fjölskyldumyndatöku. Eftir útskriftina var veisla í Raftahlíðinni, þar sem allir belgdu sig út af alls konar kræsingum. Við horfðum á Eurovision og þegar allir voru farnir heim héldum við Óskar í útskriftarpartý til Konna. Dagurinn eftir var tekinn frekar snemma, því við þurftum jú að skila öllu af okkur og ganga frá öllu eftir veisluna og klára að pakka. Seinni partinn brunuðum við suður og um nóttina til Keflavíkur, því við vorum jú að fara til Marmaris :D Ferðin var svo ekkert nema snilld!!!
Júnímánuður byrjaði á Tyrklandi. Ekki amalegt það. Fréttir af jarðskjálfta, ísbirni og riðu í Brautarholti slógu mig þó aðeins út af laginu. Merkilegt hvað Allt gerist einhvernveginn þegar maður er í útlöndum. Ég var mjög dugleg að fara í sund og heim í Hrútafjörðinn, því heima er jú Best. Fljótlega eftir að við komum heim bauð Sara í útskriftarveislu. Ég tók svo aldeilis róttæka ákvörðun um það að gefa skít í lífeindafræðina og breyta yfir í verkfræði. Sé sko ekki eftir því :)
Í júlí skellti ég mér meðal annars á ball á Blönduósi með Sálinni. Eftir mikið miðadrama og vesen var ég mjög fegin að komast inn. Ég fór líka í útilegu í Borgarfjörðinn og á Unglistarhátíðina. Svo tókst mér náttúrulega að detta efst í Kotárgilinu og slasa á mér hnéð svo ég gat varla gengið í nokkra daga. Alltaf jafn heppin! Laufey og Indriði fengu tilboð í Grettis og húsnæðismál komust í uppnám. Ég fékk líka 2 vikna sumarfrí og var hjá Laufeyju og Indriða í viku. Fór að hlakka dálítið til að flytja suður.
Ágúst var rosalegur. Verslunarmannahelginni var eytt á Akureyri og í Hrútó. Íbúðarmálum var reddað á einu bretti og fengum við Hringbrautina afhennta 15. ágúst. Við fengum líka að passa Magneu yfir nótt og það var ekki að spyrja að því, hún var eins og engill. Óskar fékk vinnu hjá Aðalvík og 23. ágúst var Raftahlíðin tæmd og brunað með allt innbúið suður. Ég byrjaði í skólanum og Laufey og co fluttu til Seattle :(
September var fullur af útgjöldum. Ég fór í sjónmælingu og í ljós kom að ég þarf að vera með gleraugu í tímum og þegar ég keyri. Þar fauk 50.000. Svo dó Knútur, svo við Óskar fjárfestum í rauðri Dell. Ég var miiiikið í skólanum og mikið að læra. Skellti mér á nokkra körfuboltaleiki og mætti á Laufskálaréttarball, öllum að óvörum. Ég týndi líka lyklunum mínum og þurfti að láta smíða nýja. Einnig þurfti ég að kveðja Frostrósina mína, en hana hafði ég átt síðan ég var 9 ára.
Í byrjun október fylltist allt af snjó. Ég hélt áfram að læralæralæra og fór á nokkra körfuboltaleiki. Skellti mér heim í lok mánaðarins og svo í afmæli til tengdó. Píla greyið fór í keisaraskurð og hafði það af. Sem betur fer.
Í nóvember tók ég upp á því að vakna nokkrum sinnum klukkan 6 til að fara á körfuboltaæfingu í KR. Alger snilld. Ég fór líka á nokkra leiki en mestum tíma eyddi ég í skólanum. Það styttist neflinlega í prófin!
Desember einkenndist af lærdómi. Ég fór á tvenna jólatónleika og tók 4 próf. 2 einkunnir eru komnar í hús og eru þær báðar nokkuð yfir 5 svo ég er sátt. Svo voru það jólin með tilheyrandi pakkaflóði og áti. Staðarskálamót milli jóla og nýárs og smá djamm á Króknum. Áramótunum var eytt heima í Hrútó og svo fór ég ásamt fríðu föruneyti Hrútfirðinga í partý til Elsu á Hvammstanga. Sérdeilis prýðilegt.
Jæja, ég vona að ég hafi ekki drepið neinn úr leiðindum. Ætla ekki að lofa að ég verði dugleg að blogga. Sjáum til.
AAaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Annars eru síðustu dagar búnir að vera frekar einhæfir. Læra læra og læra. Auk þess sem ég hef verið einstaklega pirruð. Finnst alveg merkilegt hvernig fólk getur leyft sér að haga sér. Frekja og yfirgangur og dónaskapur eiga ekki upp á pallborðið hjá mér og síðustu daga hef ég verið með mjöööög stuttan pirringskveikjuþráð þegar kemur að þessu. Hlakka til að koma heim í sveitina. Langar hreinlega að slökkva á gemmsanum og fara ekkert í tölvuna. Vera algerlega frjáls og laus við allt áreiti. Hvernig lýst ykkur á það?
Annars fór ég á Björgvin og Jólagesti um síðustu helgi. Alveg æðislegir tónleikar og allir stóðu sig alveg hreint frábærlega. Fékk alveg gæsahúð þegar Guðrún Gunnars söng Umvafin englum og þegar Svala söng Eitt sinn rétt fyrir jólin úr Anastaciu. Fæ mas gæsahúð af að hugsa um það. Páll Óskar var svo algerlega æðislegur þegar hann söng með Monicu. Þó ég hafi ekki fílað að vakna klukkan hálf 7 á sunnudagsmorguninn við það að fólkið á efri hæðinni var að blasta Palla. Klukkan hálf 7!!! En svo var Eyfi flottur líka og Sigga Beinteins og Stebbi Hilmars. Álit mitt á Daníel í GusGus (núna Esju) umturnaðist líka á tónleikunum. Mér hefur alltaf þótt hann hálf slísí og leiðinlegur, en hann var æðislegur á tónleikunum. Ótrúlega flott þegar hann og Krummi tóku John Lennon lagið. Svo fer ég líka að Frostrósir næstu helgi (já ég veit, þvílíkt veldi á mér) og ég hlakka svooooo mikið til!!! Ég man þegar fyrstu Frostrósatónleikarnir voru haldnir, þá voru þeir sýndir í sjónvarpinu á aðfangadag og ég tók þá upp á spólu. Hef horft á þá fyrir hver einustu jól síðan og alltaf dauðlangað að fara og loksins læt ég verða af því :)
Óskar á afmæli í dag og ég geri ekkert nema að læra.. Hversu skemmtileg er ég..? Stefni á að taka ærleg fagnaðarlæti á þetta 17. des, þegar prófin klárast :)
En jæja, ég þarf að halda áfram að lesa fyrir jarðfræðiprófið... Heyrumst eftir prófin
Próf!
Annars fékk ég 8 á heimadæmaprófinu í stærðfræðigreiningu. Bara nokkuð sátt með það, þó það hefði átt að vera tiltölulega auðvelt að fá 10, þar sem við höfðum reiknað öll þessi dæmi áður og af 40 heimadæmum komu 4 á prófinu. En eins og ég segi er ég bara sátt með það. Meðaleinkunnin mín eftir stærðfræðigreiningarprófin er þá 8.5 og gildir hún 30% af lokaeinkunn :D Ekki hægt að vera ósáttur við það.
Í tilefni af kreppulausa deginum ætla ég í ToysRus á eftir að kaupa jólagjöf handa Magneu. Óskar var nú e-ð að hræða mig með því hvað dót er dýrt, og ég hefði ekkert efni á því að gefa litlu sætustu frænku minni flotta gjöf, en í dag er engin kreppa og ég er milljóner ;)
Að lokum vil ég óska Gróu og Helgu til hamingju með að hafa verið valdar í landsliðið. Þið eruð flottastar!!
Sjáumst 17. desember!
Punktar og nöfn
- Tíminn líður sem aldrei fyrr
- Ég hlakka skuggalega til jólanna
- Ég er farin að sakna fólks ótrúlega mikið
- Mig langar heim í sveitina
- Mig langar í jólin
- Mig langar í sumarið
- Samt er gaman í skólanum
- Það er aðallega veðrið þessa dagana sem ég er ekki að fíla
- Ég fór í vísindaferð á föstudaginn
- Það var mjög gaman
- Eiginlega of gaman...
- Var s.s. dálítið í bullinu..
- En gaman samt ;)
- Ég fór á leik í gær
- Með Pálma
- KR vann á lokamínútunum
- Spurning um road trip í Hveragerði næstu helgi?
- Ég er að verða of húkkt á þessu..
- Það eru að skella á próf
- Desember er bara rétt handan við hornið...
Ótta
Hlátra
Lexía
Hugrenning (dálítið óþjállt samt)
Húna
Hviða
....Ákvað að hætta að bæta við listann, svo að einhverjir verði með það sama ;) Ef þú ert búinn að lesa, þá ætlar þú að kjósa :) Og ENGIN undanbrögð people!
